RK 02.02 Prentun
- Gildir frá: 24.02.2025
- Gildir til: 25.02.2027
Um samninginn
Rammasamningur um prentun tók gildi 24.02.2025 í kjölfar útboðs númer 23111 og gildir í tvö ár með heimild til framlengingar tvisvar sinnum til eins árs í senn.
Samningurinn er í tveimur hlutum.
Hluti A - Umslög og nafnspjöld, skýrslur og bæklingar, plaköt og allar aðrar prentaðar skrifstofuvörur sem ekki eru tilgreindar í tilboðsskrá.
Birgjar: Ísafoldarprentsmiðja, Pixel ehf, Svansprent, Prentmet Odda.
Hluti B - Bækur og kiljur.
Birgjar: Ísafoldarprentsmiðja, Pixel ehf, Svansprent, Prentmet Odda og Prentmiðlun ehf
Kaup á þeirri prentun sem ekki er tilgreint í útboðsgögnum fara fram með örútboðum.
Undirverktakar í örútboðum
Rammasamningshöfum er heimilt að nota undirverktaka í örútboðum samkvæmt þessum rammasamningi, þótt undirverktakinn hafi ekki verið tilgreindur í upphaflegu tilboði í rammasamningsútboðinu.
Ef nota á undirverktaka skal eftirfarandi koma fram í tilboði í örútboð eða fylgja því:
- Nafn og kennitala hvers undirverktaka.
- Lýsing á þeim verkþáttum sem hverjum undirverktaka er ætlað að sinna.
- Skriflegur samningur milli rammasamningshafa og undirverktakans, þar sem undirverktakinn skuldbindur sig til að taka viðkomandi verk að sér.
Þessar upplýsingar og gögn skulu berast með tilboðinu, en ekki á síðari stigum.
Kaupandi kann jafnframt að kalla eftir upplýsingum sem sýna fram á að undirverktakinn uppfylli þær hæfniskröfur sem þarf til að sinna þeim verkþáttum sem honum er ætlað að annast.
Leita skal samþykkis kaupanda áður en undirverktaki hefur störf. Rammasamningshafi ber fulla ábyrgð á því að undirverktaki skili verkefninu í samræmi við útboðsskilmála.
Að öðru leyti gildir ákvæði 1.2.12 í rammasamningsskilmálum um undirverktöku.
Heyrið í samningsstjóra í gegnum netfangið rammasamningar@fjs.is ef einhverjar spurningar vakna.
Seljendur
Skoða kjör
Kaupendur geta skoðað kjör í samningi með því að skrá sig inn.