RK 03.01 Tölvubúnaður
- Gildir frá: 01.04.2024
- Gildir til: 01.04.2027
Um samninginn
Rammasamningur um tölvuvörur tók gildi 01.04.2024 í kjölfar útboðs númer V22113 og gildir í tvö ár með heimild til framlengingar tvisvar sinnum til eins árs í senn.
Samningnum hefur nú verið framlengt um eitt ár og gildir til 1. apríl 2027.
Athugið! Í beinum kaupum er skylda að velja ódýrasta valkostinn hverju sinni miðað við verð+sendingarkostnað. Lægstu verðin eru merkt með grænu í verðlista.
Samningi er skipt í þrjá (3) hluta:
- Hluti: Tölvubúnaður
- Borðtölva*
- Fartölvur
- Skjáir
- Dokkuskjáir
- Tengikvír
*Advania er ekki aðili að borðtölvum.
- Hluti: Aukahlutir
- Lyklaborð
- Mýs
- Vefmyndavélar
- USB snúrur
- Display port kaplar
- HDMI kaplar
- Hluti: Sérvörur
- Skilgreindar sem tölvubúnaður og aukahlutir fyrir:
- gagnavinnslu og forritun
- vinnu með mynd og hljóð
- grafíska- og aðra hönnun
- rannsóknarvinnu og tengingar við rannsóknartæki
- ný tækni til kennslu og tilrauna
- Skilgreindar sem tölvubúnaður og aukahlutir fyrir:
Kaup innan samnings
Ef um fyrstu kaup hjá innkaupafulltrúa er að ræða mælum við með að skoða leiðbeiningar Ríkiskaupa, hvernig kaup fara fram innan rammasamnings.
Bein kaup
-
Hluti 1 – Leyfð, allt að 50 einingum á mán fyrir hvern vörulið í vörukörfu.
-
Hluti 2 – Leyfð, óháð magni.
-
Hluti 3 – Ekki leyfð
Kaupandi velur birgja með hagkvæmustu kjörin miðað við tilboðsverð vöru og afhendingarkostnað ef við á.
Kaupendur eiga kost á að kaupa fartölvu og tengikví og/eða skjá með eiginleika tengikvíar frá sama framleiðanda. Fartölva stýrir vali á framleiðanda, Þessi heimild gildir bæði um fartölvur sem eru keyptar samkvæmt þessum rammasamningi sem og eldri fartölvur. Heimild þessi nær ekki til kaupa á skjáum sem eru ekki með eiginleika tengikvíar.
Örútboð
Örútboð nauðsyn í hluta 1 og 2 þegar:
- Vörur eru aðrar en þær sem eru tilgreindar í vörukörfunni.
- Kaupandi ætlar að setja fram aðrar almennar og/eða sértækar lágmarkskröfur fyrir búnað í hluta I og/eða aukahluti í hluta II
- Pantanir / skuldbindandi kaup yfir 50 einingar fyrir hvern vörulið í körfunni í hluta 1.
- Einnig er kaupendum heimilt að taka þátt í sameiginlegum örútboðum fyrir fleiri en 50 einingar fyrir hvern vörulið.
- Athugið að allir birgjar í hluta 1 og 2 eiga að fá boð um að vera með í örútboði, hvort sem þeir séu með vöruna í vörukörfu eða ekki.
Örútboð nauðsyn fyrir kaup á öllum vörum í hluta III.
- Kaupandi setur fram sína kröfulýsingu og óskar eftir tilboðum frá þeim birgjum sem eru samþykktir.
Afhendingar
-
Birgjar skulu geta afhent vörur innan samningsins (tölvur, búnað og aukahluti) í fyrsta lagi 6 vikum eftir töku tilboðs.
- Kaupendum er heimilt að leggja fram pöntun á fyrstu sex vikum samningsins en ákvæði um févíti gildir ekki á fyrstu sex vikum ef birgi á ekki vöruna á lager.
-
Ef keypt er fyrir hærri upphæð en ISK 50.000 með vsk skal afhenda vöru að kostnaðarlausu til kaupenda á höfuðborgarsvæðinu og á pósthús eða til viðeigandi flutningamiðstöðva til kaupenda utan höfuðborgarsvæðis.
-
Bjóðandi skal gefa upp sendingarkostnað fyrir lægri innkaup en ISK 50.000 með tilboðinu sínu. Sendingarkostnaðurinn skal vera fyrir afhendingar til kaupenda á höfuðborgarsvæðinu eða á pósthús eða til viðeigandi flutningamiðstöðva til kaupenda utan höfuðborgarsvæðis.
-
Í beinum kaupum skal seljandi afhenda vöruna samdægurs eða eigi síðar en næsta virka dag eftir að pöntun er lögð fram.
- Ákvæði um afhendingu og afhendingarskilmála geta verið nánar skilgreind í örútboðum.
Verðbreytingar
- Verðbreytingar (verðhækkanir vegna tækniuppfærslna og/eða verðlækkanir) á boðnum búnaði eru heimilar, í fyrsta lagi eftir 6 mánuði frá töku tilboðs. Slíkar breytingar verða síðan heimilar á 6 mánaða fresti á samningstíma og eru háðar samþykki Fjársýslunnar. Næsti fresturinn til að óska eftir verðbreytingum er 10 mars 2025.
- Beiðnir um verðbreytingar berist á rammasamningar@fjs.is.
- Verðhækkanir vegna tækniuppfærslu mega að hámarki vera 5%.
- Allt að ársfjórðungslega áskilja Ríkiskaup sér rétt til að óska eftir uppfærslum á tæknilegum kröfum til viðmiðunarbúnaðar og óska eftir viðmiðunarverði á slíkum búnaði frá öllum birgjum. Ríkiskaup áskilja sér rétt til að birta slíkar upplýsingar og kynna fyrir aðilum að rammasamningi.
- Verðbreyting vegna breytinga á gengi er heimiluð í hluta I og II og einungis ef breytingin á gengi er meiri en +/- 5%.
- Einnig er heimilt að óska eftir verðbreytingum á aukahlutum i vörukörfunni í hluta II í samræmi við vísitölu neysluverðs. Grunngildi til útreikninga á verðbreytingum skal vera vísitala neysluverð í sept 2023 - 599,9 stig.
- Verði gerðar breytingar af opinberri hálfu á tollum eða öðrum gjaldaákvörðunum vöru eða þjónustu sem hafa áhrif á verð hennar skal verð breytast á samsvarandi hátt skv. ósk samningsaðila.
- Efni seljandi til sértilboða, útsölu eða samsvarandi verðlækkana á samningstímanum skal þess gætt að aðilar að rammasamningi njóti ætíð hagstæðasta verðs sem í boði er.
Seljendur
Skoða kjör
Kaupendur geta skoðað kjör í samningi með því að skrá sig inn.