Fara í efni

Miðlægir samningar

RK 14.10 Túlka- og þýðingaþjónusta

Rammasamningur um þýðinga- og túlkaþjónustu

  • Gildir frá: 08.09.2026
  • Gildir til: 08.09.2028

Um samninginn

Rammasamningur um þýðinga- og túlkaþjónustu. Samningurinn var boðinn út í 5 hlutum: 

A. Almenn þýðingarþjónusta
B. Þjónusta löggiltra skjalaþýðenda

C. Almenn túlkaþjónusta
D. Löggiltir dómtúlkar
E. Símatúlkun

Innkaup innan samnings:

Kaupendur eiga að kaupa þá þjónustu sem rammasamningurinn nær til hjá seljendum innan samningsins, nema annað sé sérstaklega tekið fram.

Ef enginn seljandi innan rammasamningsins getur veitt þá þjónustu sem kaupandi þarf, er heimilt að leita til þjónustuaðila utan samningsins.

Bein kaup

Kaupandi getur keypt þjónustu beint vegna einstakra verkefna, í samræmi við þau kjör og skilmála sem gilda samkvæmt rammasamningnum.

Við bein kaup skal fyrst leita til þess samningsaðila sem býður lægsta verðið. Geti hann ekki tekið að sér verkefnið er leitað til þess sem býður næstlægsta verðið og svo koll af kolli eftir þörfum.

Kaupandi getur einnig farið í örútboð meðal þeirra samningsaðila sem geta sinnt viðkomandi verkefni. Í örútboði má gera meiri kröfur til þjónustunnar og hæfis bjóðenda en þær lágmarkskröfur sem gerðar eru í rammasamningnum. Nánar er fjallað um örútboð hér fyrir neðan.

Kaupanda er heimilt, ef málefnalegar ástæður eru fyrir hendi, að kaupa þjónustu utan rammasamnings fyrir allt að 10% af ársveltu sinni í viðkomandi þjónustuflokki á undangengnu ári. Slík ástæða getur til dæmis verið sértækar þarfir kaupanda.

Dæmi: Ef kaupandi keypti þjónustu fyrir 100 m.kr. í viðkomandi þjónustuflokki árið 2023, má hann kaupa þjónustu fyrir allt að 10 m.kr. utan rammasamnings árið 2024. Árið 2025 miðast heimildin við 10% af kaupum ársins 2024 og svo framvegis.

 

Örútboð

Leyfilegt er að fara í örútboð innan rammasamningsins. Það skal gera með eftirfarandi hætti:

  • Senda skriflega fyrirspurn á alla seljendur í viðeigandi hluta, sem geta veitt þá þjónustu sem þörf er á.
  • Tilboðsfrestur skal vera nægilega langur til að seljendur geti undirbúið og skilað tilboði. Við ákvörðun frests skal meðal annars taka tillit til þess hversu flókin kaupin eru og afhendingartíma.
  • Taka þarf fram hvaða valforsendur verða notaðar og vægi hverrar og einnar þeirra. Leyfilegar valforsendur og vægi í svigum:
    • Verð – t.d. tímaverð, fast verð eða hámarksverð (0–100%)
    • Þjónustugeta (0–70%)
    • Afhendingartími (0–70%)
    • Reynsla (0–70%)
    • Fyrri verkefni (0–70%)
    • Umsagnir um fyrri verk (0–70%)
    • Gæðavottun (0–70%)
  • Leyfilegt er að gera meiri kröfur um þjónustuna eða hæfi seljanda í örútboði heldur en voru gerðar sem lágmarkskröfur í rammasamningsútboðinu. Kröfurnar þurfa samt að tengjast því sem verið er að kaupa, vera sanngjarnar miðað við kaupin og mega ekki koma seljendum á óvart miðað við það sem fram kemur í rammasamningnum.
  • Almenn ákvæði í rammasamning, t.d. ákvæði um verðbreytingar, gilda líka í örútboðum, nema annað sé tekið fram í örútboðinu.
  • Öll tilboð verða að berast skriflega
  • Ekki má opna tilboðin fyrr en eftir að tilboðsfrestur rennur út
  • Kaupandi skal bera tilboðin saman og velja á milli þeirra samkvæmt valforsendum

Hægt er að fá aðstoð frá útboðsráðgjöfum Fjársýslunnar verð gerð örútboða með því að senda inn verkbeiðni hér: https://island.is/s/rikiskaup/verkbeidni-til-innkaupasvids-fjarsyslunnar

Sjá nánar um örútboð í útboðslýsingu, undir "skoða kjör" flipanum.

 

Seljendur

Túlkamiðlunin ehf.
Laugavegi 11
Sími: 5873000
Tengiliður samnings
Kristján Lundberg
Túlkanet ehf
sunnusmári 4
Sími: +3548927863
Tengiliður samnings
Selma Kamal
Una Guðlaug Sveinsdóttir
Blönduhlíð 17
Sími: +3548487585
Tengiliður samnings
Una Guðlaug Sveinsdóttir
Víetnamska ehf
Jarpstjörn 8
Sími: 7828889
Tengiliður samnings
Ellen Hong Van Truong
ABC Qandil Túlkaþjónusta
Grensásvegur 3
Sími: 824-2699
Tengiliður samnings
Salah Karim Mahmood
Aleksandra Maria Kieliszewska Tłumaczenia
os. Jana III Sobieskiego 22/132
Sími: +48 882 032 290
Tengiliður samnings
Aleksandra Maria Kieliszewska
Algantra ehf
Sími: 6903381
Tengiliður samnings
Tabit Lakhdar
Alhliða túlka og þýðingastofan ehf.
Dalaland 11
Sími: 6910691
Tengiliður samnings
Leyla Eve Gharavi
Alþjóðasetur ehf.
Álfabakka 14
Sími: 5309300
Tengiliður samnings
Sigríður Vilhjálmsdóttir
Axent ehf
Sundagarðar 4-6
Sími: 8596699
Tengiliður samnings
Þóra Helgadóttir
Diction Ísland ehf.
Stórhöfði 21
Sími: 644 0800
Tengiliður samnings
Andri Freyr Ríkarðsson
Embla Ýr Bárudóttir
Barónsstíg 65
Sími: 6983228
Tengiliður samnings
Embla Ýr Bárudóttir
Emil B. Karlsson
Espigerði 4
Sími: 8221203
Tengiliður samnings
Emil B Karlsson
Fatima Túlkaþjónusta og Þýðingar
Sæmundargötu 18
Sími: 774 6727
Tengiliður samnings
Erna Huld Ibrahimsdóttir
Felicia ehf
Sími: 6631817
Tengiliður samnings
Felicia Mariana Pralea
FJ ehf
Efstaleiti 42
Sími: 3546996479
Tengiliður samnings
Fida Abu Libdeh
Fjölmenningarstofa ehf.
Naustabryggja 11
Sími: 698 5127
Tengiliður samnings
Arann Taha Karim Mahmood
Igor Glushanets
Búðagerði 5
Sími: +447418359194
Tengiliður samnings
Igor Glushanets
Intermediate
Sími: 7909992
Tengiliður samnings
Brynjar Ingi Alshbaki
Irma
Engjasel 15
Sími: 8630499
Tengiliður samnings
Irma Oboladze-Matchavariani
Jana Thuy Helgadóttir
Jarpstjörn 8
Sími: 8697379
Tengiliður samnings
Jana Thuy Helgadóttir
Jerúsalem
Kögursel
Sími: 6946748
Tengiliður samnings
Qussay Odeh
Jónas Knútsson
Smáragata 9A
Sími: 6916713
Tengiliður samnings
Jónas Knútsson
Kabul ehf.
Njálsgötu 80
Sími: 6124665
Tengiliður samnings
Zahra Mesbah Akbari
Karol Walejko
Álalind 5
Sími: 8638957
Tengiliður samnings
Karol Walejko
Landstúlkun
Sími: 7752528
Tengiliður samnings
Aleksandra Karwowska
Ling Túlka og Þýðingarþjónustan ehf
Austurbrún 2
Sími: 7910649
Tengiliður samnings
Ewelina Liberacka
Menningarsetur ehf
Tengiliður samnings
Díana Jónsdóttir
Nexa slf.
Ástún 4
Sími: +3548638957
Tengiliður samnings
Karol Walejko
Níels Rúnar Gíslason
Sími: 6998830
Tengiliður samnings
Níels Rúnar Gíslason
NLT ehf.
Torfufell 23
Sími: +3546665060
Tengiliður samnings
Fahim Khoshkhoo
Polanska slf.
Suðurlandsbraut 32
Sími: 6991004
Tengiliður samnings
Sandra María Steinarsdóttir Polanska
Prolingua slf.
Klappakór 1a
Sími: +3548674612
Tengiliður samnings
Ingvar Eggertsson
Rit ehf.
Grenimelur 24
Sími: 8999231
Tengiliður samnings
Paul Richardson
Rocio Calvi
Súluhöfði 10
Sími: 8488900
Tengiliður samnings
Rocio Calvi
Skjal þjónusta ehf.
Síðumúli 28
Sími: 5307300
Tengiliður samnings
Jóna Eðvaldsdóttir
Skopos ehf
Suðurlandsbraut 22
Sími: +3546988233
Tengiliður samnings
Guðmundur Magnús
Túlka- og þýðingamiðstöð Íslands
Sólvallagötu 48
Sími: 5179345
Tengiliður samnings
Angélica Cantú Dávila
Túlkaþjónustan slf.
Suðurlandsbraut 32
Sími: 5170606
Tengiliður samnings
Sandra María Steinarsd Polanska
Verkefni og lausnir ehf.
Álfholt 56 B
Sími: 6959232
Tengiliður samnings
Olga Shcheblykina

Skoða kjör

Kaupendur geta skoðað kjör í samningi með því að skrá sig inn.