RK 16.05 Úrgangsþjónusta
- Gildir frá: 01.09.2026
- Gildir til: 01.09.2028
Um samninginn
Nýr rammasamningur um endurvinnslu, sorphirðu og kaup á úrgangsílátum hefur tekið gildi.
Markmið rammasamningsins:
Markmið samningsins er að tryggja hagkvæm, skilvirk og umhverfislega ábyrg innkaup á úrgangsþjónustu og úrgangsílátum.
-
Að auðvelda og efla einfalda, skilvirka og aðgengilega flokkun úrgangs í samræmi við umhverfisstefnu og markmið kaupenda.
-
Að stuðla að minni sóun og aukinni flokkun, endurnýtingu og endurvinnslu úrgangs.
-
Að styðja við hagkvæma og gagnadrifna úrgangsstjórnun með áreiðanlegum og sundurliðuðum upplýsingum um magn, kostnað og meðhöndlun úrgangs.
-
Að tryggja ábyrga meðhöndlun úrgangs í samræmi við þarfir kaupenda, gildandi lög og reglugerðir.
-
Að tryggja kaupendum aðgang að vönduðum og stöðluðum úrgangsílátum sem styðja við skilvirka og samræmda flokkun.
Hluti A. Íslenska Gámafélagið sér um:
- Sorphirðu/endurvinnslu
- Leigu á gámum/ílátum til flokkunar og söfnunar úrgangs
- Móttöku spilliefna
- Eyðingu trúnaðargagna
Hluti B. Terra er forgangsbirgi fyrir bein kaup á :
- Kerum og tunnum af stærðinni 120–1.100 lítrar, þegar samanlagt rúmmál pöntunar er allt að 6.600 lítrar.
* Þegar samanlagt rúmmál pöntunar fer yfir 6.600 lítra getur kaupandi farið í örútboð meðal samningsaðila í hluta B. Kaupendum er bent á að hafa samband við rammasamningar@fjs.is vegna slíkra innkaupa.
Sundurliðun verðs má finna á læstu svæði fyrir kaupendur undir flipanum „Skoða kjör".
Kaupendur bera ábyrgð á öruggri eyðingu allra sinna trúnaðarskjala og skulu fylgja þeim lögum sem um það gilda hverju sinni.
Rammasamningur þessi gildir eingöngu á stór-höfuðborgarsvæðinu:
- Reykjavík
- Kópavogur
- Seltjarnarnes
- Garðabær
- Hafnarfjörður
- Mosfellsbær
- Kjósarhreppur
Við mælum með því að kaupendur kynni sér flokkunarleiðbeiningar IGF Flokkun & fræðsla | Íslenska gámafélagið
Við mælum einnig með því fyrir kaupendur að kynna sér Reglugerð um vernd trúnaðarupplýsinga
Verð og verðbreytingar
Heimilt er að óska eftir breytingu á samningsverði einu sinni á ári á samningstímanum. Samþykkt verðbreyting tekur gildi 1. febrúar ár hvert.
Verðbreyting skal reiknuð á grundvelli breytingar á samsettri vísitölu Hagstofu Íslands frá grunnvísitölum á opnunardegi tilboða. Samsetta vísitalan er reiknuð með eftirfarandi vægi:
- 50% launavísitala, miðað við grunngildið 1.098 (M10 2025).
- 50% undirvísitala neysluverðs nr. 072 – rekstur ökutækja, miðað við grunngildið 100,6 (M10 2025).
Verðbreyting kemur aðeins til framkvæmda ef breyting samsettu vísitölunnar nemur að lágmarki 5%. Breyting samningsverðs skal samsvara reiknaðri breytingu samsettu vísitölunnar.
Skrifleg beiðni um verðbreytingu skal berast Fjársýslunni eigi síðar en 10. janúar ár hvert til að breyting geti tekið gildi 1. febrúar sama ár. Beiðni skal send á rammasamningar@fjs.is.
Komi í ljós á samningstíma að seljandi hafi ekki veitt umsaminn afslátt eða verð til kaupanda mun seljandi verða krafinn um leiðréttingu allt aftur til upphafs samnings.
- Bjóðenda er ekki heimilt að breyta verði án skriflegs samþykkis Fjársýslunnar. Verðhækkanir/lækkanir taka einungis gildi eftir samþykki aðila samnings. Fjársýslan áskilur sér rétt til 1 mánuðar til að vinna úr beiðni og samskiptum við viðskiptavini“
Efni seljandi til sértilboða, útsölu eða samsvarandi verðlækkana á samningstímanum skal þess gætt að aðilar að rammasamningi njóti ætíð hagstæðasta verðs sem í boði er.
Kaupendur eru hvattir til að kynna sér Græn skref Umhverfisstofnunar sjá: https://graenskref.is/
Fyrir frekari upplýsingar, vinsamlegast hafið samband við samningsstjóra í gegnum netfangið rammasamningar@fjs.is
Seljendur
Skoða kjör
Kaupendur geta skoðað kjör í samningi með því að skrá sig inn.